Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
VAKINN - Umhverfiskerfi
Umhverfisviðmið VAKANS eru ekki seld sérstaklega heldur geta þeir sem taka þátt í gæðakerfinu fengið þessa úttekt. Hún er hins vegar ekki skylda.
Þrír flokkar
Umhverfisviðmiðin eru notuð til að meta hvar fyrirtæki er statt með tilliti til umhverfismála, sjálfbærni og tengingar við samfélagið. Í framhaldi af úttekt fær fyrirtæki "Brons", Silfur" eða "Gull". Þeir staðir sem þegar erum með ISO, Svaninn eða Earth Check fá gull án úttektar svo framalega sem þeir uppfylla nokkur atriði er tengjast samfélagslegri ábyrgð. Umhverfisviðmiðunum fylgir einfaldur gátlisti. Hann hjálpar til við að greina hvar fyrirtækið er statt á leið sinni í átt að sjálfbærri ferðaþjónustu. Listanum er ætlað að gefa góða mynd af núverandi stöðu umhverfismála innan fyrirtækisins. Þennan lista þurfa stjórnendur fyrirtækisins að fylla út áður en hægt er að sækja um umhverfisflokkunina.
Öll fyrirtæki sem þátt taka í VAKANUM skulu einnig samþykkja og fylgja siðareglum VAKANS.
Reglulegar mælingar sem sýna árangur
Þau fyrirtæki sem ætla sér að fá silfur- flokkun þurfa að hafa verið með reglulegar mælingar sem sýna árangur á a.m.k. einum þætti sem getið er um í aðgerðaáætlun fyrirtæksins og á tveimur þáttum til að fá gull-flokkun (sjá fylgigögn um vöktun).
Nánar um umhverfisviðmiðin
Umhverfiskerfið byggir á sjö höfuðflokkum:
- Stefnumótun og starfshættir
– Er búið að kynna sýn og stefnu fyrirtækisins fyrir starfsfólki? - Innkaup og auðlindir
– Er hugað að líftímakostnaði við innkaup og aðrar ákvarðanir? - Orka
– Er reglulegt eftirlit og viðhald á kæli- og hitakerfum? - Úrgangur
– Er gleri, pappír, plasti eða málmum skilað til endurvinnslu? - Náttúruvernd
– Er stutt við uppgræðslu lands? - Samfélag
– Taka sæti í nefnd eða stjórn samtaka í héraði. - Birgjar og markaður
– Vita hvar hráefni eru framleidd og hvernig staði er að framleiðslunni.
Umhverfisviðmið, brons
Gripið hefur verið til a.m.k. 6 aðgerða og a.m.k. einnar aðgerðar á hverju sviði til að:
- Minnka úrgang
- Spara orku (t.d. eldsneyti, rafmagn og heitt vatn)
- Stuðla a vistvænni innkaupum
Umhverfisviðmið, silfur
Reglulegar mælingar sem gerðar hafa verið í 6-12 mán. sýna árangur á a.m.k. einum þætti sem getið er um í aðgerðaáætlun fyrirtækisins t.d:
- Minnkun úrgangs
- Sparnað á rafmagni
- Sparnað á heitu vatni
- Sparnaði á eldsneyti
Umhverfisviðmið, gull
Gripið hafi verið til a.m.k. 25 aðgerða, a.m.k. fimm aðgerðar (sjá gátlista) á hverju sviði til að:
- Minnka úrgang
- Spara orku (t.d. eldsneyti, rafmagn og heitt vatn)
- Stuðla að vistvænni innkaupum
Fyrir liggja upplýsingar um framlög fyrirtækisins til a.m.k.:
- Eins verkefnis á sviði náttúruverndar
- Eins verkefnis á sviði samfélagsmála
-------------------------------------------
Gögn til útprentunar og notkunar
--------------------------------------------
Umhverfisviðmið og gátlisti:
- Umhverfisviðmið (PDF)
- Gátlisti (PDF)
Fylgigögn:
- Vöktun á notkun á heitu vatni (Excel)
- Vöktun á rafmagsnotkun (Excel)
- Vöktun á sorpmagni (Excel)
- Vöktun á eldsneytisnotkun ökutækja (Excel)








.gif)
.gif)
.gif)