Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

Umhverfisverðlaun FerðamálaráðsUmhverfisverðlaun Ferðamálstofu
Ferðamálastofa veitir umhverfisverðlaun til ferðaþjónustufyrirtækja eða einstaklinga í ferðaþjónustu sem þótt hafa skara framúr á sviði umhverfismála. Verðlaunin eru veitt árlega.

Sjálfbær og ábyrg ferðamennska
Við tilnefningu til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu er vert að hafa í huga að Ferðamálastofa byggir umhverfisstefnu sína á sjálfbærri og ábyrgri ferðamennsku en UNWTO (World Tourism Organization) skilgreinir sjálfbæra ferðamennsku á eftirfarandi hátt:

„Sjálfbær ferðamennska mætir þörfum ferðamanna og heimamanna en stuðlar um leið að verndun og auknum markaðstækifærum til framtíðar. Þetta felur í sér að auðlindum er stjórnað með þeim hætti að efnahagslegum, félagslegum og fagurfræðilegum þörfum er fullnægt, á sama tíma og viðhaldið er menningu, nauðsynlegum vistfræðilegum ferlum, líffræðilegri fjölbreytni og nauðsynlegum lífsskilyrðum“.

Hvatning og áminning
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu eru hugsuð sem hvatning og áminning til þeirra sem stunda ferðaþjónustu um að huga vel að umhverfinu í allri skipulagningu og starfrækslu þjónustunnar. Náttúra Íslands er sú auðlind sem ferðaþjónustan á Íslandi byggir á til framtíðar. Í kynningu og ímyndarsköpun hefur þannig verið lögð áhersla á hreinleika og lítt snortna náttúru landsins. Mikilvægt er að allar áætlanir og framkvæmdir í viðkvæmri náttúru Íslands hafi það að leiðarljósi að viðhalda þessari ímynd og trúverðuleika hennar, en þó fyrst og fremst til þess að komandi kynslóðir geti notið náttúrunnar á sama hátt og núverandi kynslóð hefur gert.


Tilnefning umhverfisverðlauna

Tilnefning á ferðaþjónustuaðila þarf að vera skýr og greinargóð. Hér að neðan er hægt að hlaða niður word-skjali þar sem hægt er að svara einföldum spurningum varðaandi þá sem tilefndir eru. Þau atriði sem vega þyngst eru eftirfarandi:

  • Viðkomandi ferðaþjónustuaðili hefur sett sér skýr og mælanleg markmið í umhverfismálum sbr. umhverfis- / sjálfbærnistefnu og fylgir þeim eftir. 
  • Viðvera sérhvers einstaklings, ferðamanns jafnt sem þjónustuaðila, skerði sem ekki ásýnd og gæði þess umhverfis sem fyrir er svo komandi kynslóðir geta notið umhverfisins á sama hátt og núverandi kynslóð.

Ennfremur er mikilvægt að ferðaþjónustuaðilar stuðli að fræðslu og upplýsingum um umvherfismál, lágmarki orkunotkun, noti umhverfisvænar vörur og efni og kappkosti við að nýta sér þjónustu og vörur úr nærumhverfi sínu.
.