Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

Vakinn lógóGæða- og umhverfiskerfið Vakinn

Hjá Ferðamálastofu er nú unnið að uppbyggingu heilstæðra gæða- og umhverfisviðmiða fyrir íslenska ferðaþjónustu. Verkefnið er afsprengi eins þriggja þróunarverkefna sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að. Hin tvö verkefnin eru Gáttir, vöruþróunarverkefni á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og Krásir, fræðslu og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð.

Unnið í samstarfi
Gæða- og umhverfisverkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands, enda mikilvægt að breið samstaða skapist um þennan málaflokk. Ákveðið var að byggja á kerfi því sem unnið er eftir á Nýja Sjálandi og kallast Qualmark. Meginmarkmið kerfisins er að auka og efla gæði í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja hér á landi.

Gæðakerfið
Gæðakerfið skiptist í tvo flokka:

  • Stjörnuflokkun fyrir gististaði
    -Frá einni og upp í fimm stjörnur) innan 5-7 undirflokka.
  • Ferðaþjónusta - önnur en gisting
    -Þessi úttekt byggist á tvenns konar viðmiðum, annarsvegar almennum viðmiðum og hinsvegar sértækum viðmiðum fyrir hvern og einn undirflokk sem verða vel á þriðja tuginn. Hér er ekki um stjörnuflokkun að ræða; annað hvort uppfylla fyrirtæki skilyrði um vottun eða ekki.

Umhverfiskerfið
Umhverfiskerfið byggir á sjö höfuðflokkum:

  • Stefnumótun og starfshættir
  • Innkaup og auðlindir
  • Orka
  • Úrgangur
  • Náttúruvernd
  • Samfélag
  • Birgjar og markaður.

Í framhaldi af úttektinni er þjónustuaðilunum raðað í 3 flokka, gull, silfur og brons.

Siðareglur VAKANS
Öll fyrirtæki sem þátt taka í VAKANUM skulu einnig samþykkja og fylgja siðareglum VAKANS.

Fer í notkun á árinu 2012
Samkomulag við Qualmark á Nýja-Sjálandi um notkun á kerfinu náðist í mars 2010 en síðan hefur mikil vinna verið lögð í að þýða viðmið, staðfæra þau og prófa kerfið. Áætlað er að kerfið verið komið að fullu í notkun árið 2012.

Auglýst var eftir tillögum að nafni og efnt til lokaðrar samkeppni um merki. Niðurstaðan var að kerfið fékk nafnið VAKINN.

Nánari upplýsingar veitir Elías Bj. Gíslason forstöðumaður hjá Ferðamálastofu elias@ferdamalastofa.is