Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
EDEN - gæðaáfangastaðir í Evrópu
Ferðamálastofa er fyrir Íslands hönd aðili að Evrópska EDEN-verkefninu, sem stendur fyrir „European Destination of Excellence“. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni*.
Árleg samkeppni
Árlega er haldin samkeppni um gæða áfangastaði í Evrópu og er nýtt þema á hverju ári. Með því að hafa þau breytileg er leitast við að gefa sem flestum gerðum af stöðum og ferðaþjónustu kost á þátttöku. Auglýst er eftir umsóknum í hverju landi og einn áfangastaður valinn frá hverju þátttökuríki í Evrópu. Verðlaunaafhendingin og sýning með kynningu á öllum verðlaunaáfangastöðunum fer fram í tengslum við ferðamálaráðstefnuna The European Tourism Forum sem haldin er í Brussel á hverju hausti. Allir EDEN verðlaunahafar fá töluverða umfjöllun og kynningu í fjölmiðlum í Evrópu í tengslum við verðlaunaafhendinguna og á vefsíðum og kynningarritum EDEN verkefnisins eftir það. EDEN verðlaunin eru bæði viðurkenning á gæðum viðkomandi áfangastaðar og hafa mikla þýðingu fyrir markaðssetningu. Að jafnaði er auglýst eftir tilnefningum í mars á hverju ári.
Tengslanet
Annar tilgamgur EDEN-verkefnisins er að mynda tengslanet þeirra staða sem öðlast útnefningu. Þannig geti staðir aukið samvinnu sín á milli, skipst á upplýsingum, deilt góðum ráðum o.s.frv., öllum til hagsbóta.
EDEN-áfangastaðir Íslands
Ísland tók í fyrsta sinn þátt í EDEN-verkefninu á árinu 2010, þegar samkeppnin var haldin í 4. sinn. Þema ársins 2010 var Sjálfbær ferðaþjónusta tengd vatni (Sustainable Aquatic Tourism). Nokkrar áhugaverðar tillögur bárust en dómnefnd valdi Vestfirði og Vatnavinir Vestfjarða EDEN sem fulltrúa fyrir hönd Íslands. Árið 2011 var þemað „Ferðaþjónusta og endurnýjun svæða“ (Tourism and Regeneration of Physical Sites) og var Stykkishólmsbær fulltrúi Íslands.
Vefsíður með nánari upplýsingum:
________________________________________
* Skilgreining World Tourism Organization (UNWTO) á sjálfbærri ferðamennsku frá 2004 hljóðar svo: „Sjálfbær ferðaþjónusta á að:
- - Nýta umhverfisauðlindir sem gegna lykilhlutverki í þróun ferðaþjónustu á sem bestan og hagkvæmastan hátt en viðhalda jafnframt nauðsynlegum vistfræðilegum ferlum og aðstoða við verndun náttúruarfs og líffræðilegrar fjölbreytni;
- - Virða félags- og menningarlegan upprunaleika samfélaga í heimabyggðum, vernda menningararf þeirra, bæði byggingararf og samtímamenningu, og hefðbundin lífsgildi, og stuðla að skilningi og umburðarlyndi á milli ólíkra menningarhópa;
- - Tryggja lífvænlega, langtíma efnahagslega starfsemi sem veitir öllum hagsmunaaðilum félagslegan og hagrænan ávinning er dreifist á milli þeirra á sanngjarnan hátt, þ.m.t. hvað varðar stöðugleika í möguleikum til atvinnuþáttöku








.gif)
.gif)
.gif)
