Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
Verkefni Ferðamálastofu á sviði umhverfismála
Umhverfismál eru samkvæmt lögum um skipulag ferðamála eitt af verkefnum Ferðamálastofu. Stofnunin sinnir fjölþættri starfsemi á þessu sviði og má þar til dæmis nefna:
- Úthlutun styrkja til þeirra sem vinna að úrbótum í umhverfismálum á ferðamannastöðum
- Fræðslustarf, svo sem útgáfu leiðbeiningar- og fræðslurita
- Ráðgjöf
- Einstök verkefni, til dæmis hreinsun hálendisleiða
Af þessum þáttum er sá efsti sínu fyrirferðarmestur. Auk þess má nefna að stofnunin hefur á liðnum árum haft forgöngu um og umsjón með og/eða styrkt úrbætur á fjölsóttum ferðamannastöðum, oft í samvinnu við aðra, svo sem sveitarfélög á viðkomandi svæði, Vegagerðina og Umhverfisstofnun. Þarna hefur jafnan verið um að ræða nokkuð umfangsmiklar framkvæmdir.
Fróðleg samantekt um starf Ferðamálastofu á sviði umhverfismála má m.a. finna í grein í tímaritinu Útiveru frá júní 2011.








.gif)
.gif)
.gif)