Um Ferðamálastofu
Ferðamálastofa
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
23. desember 2009
Iceland Express flýgur til Winnipeg
Iceland Express hyggst hefja áætlunarflug til Winnipeg í Kanada næsta sumar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Þar segir að flogið verði einu sinni til tvisvar í viku, frá og með júnímánuði.
Lesa frétt
18. desember 2009
Ánægðir ferðamenn í Reykjavík
Alls höfðu 91% erlendra ferðamanna í Reykjavík góða eða frábæra reynslu af borginni á liðnu sumri. 94% aðspurðra sögðust einnig myndu mæla með Reykjavík við aðra.
Segir Höfuðborgarstofa, að þetta sé betri árangur en nokkru sinni, samanborið við kannanir síðustu sumra en kannanir hófust árið 2004.
Lesa frétt
15. desember 2009
Ísland á EIBTM
EIBTM sýningin í Barcelona fór fram dagana 1.-3. desember 2009. Alls tóku 12 fyrirtæki þátt í sýningunni ásamt Ráðstefnuskrifstofu Íslands en EIBTM sýningin hefur stimplað sig inn sem einn helsta fagsýningin í Evrópu þegar kemur að ráðstefnu-, funda- og hvataferðamarkaðinum.
Lesa frétt
14. desember 2009
Námsbraut í ferðamálum og þjónustu
Opni háskólinn við Háskólann í Reykjavík kynnir námsbraut í ferðamálum og þjónustu þar sem rýnt verður í helstu áskoranir og sóknarfæri ferðamarkaða. Markmið námsins er að nemendur öðlist skýra og hagnýta sýn á starfsemi ferðaþjónustu með áherslu á viðskiptafræðilegan grunn.
Lesa frétt
13. desember 2009
Hlaut nafnið Harpa
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við hafnarbakkannn hefur fengið nafnið Harpa. Þetta var opinberað við hátíðlega athöfn í húsinu á föstudaginn. Það var Harpa Karen Antonsdóttir, 10 ára gömul stúlka, sem gaf húsinu nafnið.
Lesa frétt
12. desember 2009
Ferðamálaráð skoðar Tónlistar- og ráðstefnuhúsið
Núverandi ferðamálaráð hélt sinn síðasta fund síðastliðinn fimmtudag. Ráðið var skipað frá 1. janúar 2006 en iðnaðarráðherra skipar nýtt ferðamálaráð til fjögurra ára í janúar næstkomandi.
Í frétt á vef iðnaðarráðuneytisins kemur fram að fulltrúar í ráðinu fengu leiðsögn um Tónlistar- og ráðstefnuhúsið en gert er ráð fyrir að húsið verði ferðaþjónustunni gríðarlega mikilvægt sem ráðstefnustaður og vettvangur fyrir fjölmarga viðburði sem hingað til hefur vantað fallega umgjörð.
Lesa frétt
11. desember 2009
Skemmtileg jólakveðja frá Iceland Travel
Fyrirtæki fara ýmsar leiðir við að senda viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum jólakveðjur. Mjög hefur færst í vöxt að sendar séu út rafrænar kveðjur og þótt sumum þyki þær ópersónulegri en „gömlu góðu“ jólakortin þarf það svo sannarlega ekki að vera.
Lesa frétt
7. desember 2009
Fyrsta tölublað Icelandic Times
Út er komið fyrsta tölublað tímaritsins Icelandic Times. Útgefandi er Land og saga en í blaðinu má finna umfjöllun um menningu, hönnun, sögu og fjölda íslenskra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu.
Efnistök miða að því að kynna erlendum gestum sögu okkar og menningu í sinni fjölbreytilegu mynd.
Lesa frétt
4. desember 2009
Nýtt hvalaskoðunarskip til hafnar
Nýjasta hvalaskoðunarskip Íslendinga, og jafnframt það stærsta, kom til heimahafnar í Reykjavík í gær. Skipið hefur hlotið nafnið Andrea og er gert út af fyrirtækinu Hvalalíf.
Andrea hefur getu til að taka 240 farþega um borð en Hvalalíf hefur ákveðið að takmarka fjöldann við 150 farþega og tryggja þar með hverjum og einum aukið rými, þægindi og öryggi.
Lesa frétt
4. desember 2009
Áning 2010 komin út
Gistibæklingurinn Áning er nú kominn út fimmtánda árið í röð en hann kemur út í 55.000 eintökum á íslensku, ensku og þýsku. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um tæplega þrjú hundruð gististaði, um 80 tjaldsvæði og 60 sundlaugar og staðsetningu þeirra um land allt.
Lesa frétt








.gif)
.gif)
.gif)