Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

North Atlantic Tourist Association
Ferðamálasamstarf Íslands, Færeyja og Grænlands hefur staðið um árabil og var ný skipan þess ákveðin í lok árs 2006. Með North Atlantic Tourism Association, NATA, var stofnaður nýr vettvangur á gömlum grunni til að móta sameiginlega stefnu í ferðamálum fyrir Vestur-Norðurlönd og styrkja ýmis verkefni sem efla ferðaþjónustu innan svæðisins. Í NATA sameinast starfsemi Vestnorræna ferðamálaráðsins (VNTB), sem öll löndin eiga aðild að, og markmið ferðamálasamninganna SAMIK og FITUR, sem í gildi hafa verið frá árinu 1995 við Grænland og Færeyjar. Nafnið hefur alþjóðlega skírskotun og einnig er haft í huga að samstarfið geti náð til fleiri nágranna við Norður-Atlantshafið í framtíðinni.
Nýr samningur 2011
Í lok desember 2010 var undirritaður nýr samningur. Megináherslan í samningnum er sem fyrr áhersla á eflingu ferðaþjónustu í löndum þremur en stefnubreyting er fólgin í því að styrkja skuli fremur ferðalög á milli landanna þriggja en að kynna þau úti í heimi sem eina heild.
Þess vegna er hluta af samningsfénu ætlað að styrkja ferðir skólahópa á milli landanna til að auka samstarf skóla og bæta þekkingu á löndunum hjá ungu fólki. Tilgangurinn er einnig að styrkja samgöngur á milli landanna, ferðaþjónustu utan sumartímans og að skólasamstarfið nái til sem flestra svæða í löndunum.
Gert er ráð fyrir að 25% af samningsfénu nýtist til að styrkja skólasamstarf eða annað samstarf sem eflir innbyrðis kynni í löndunum þremur.
Í samstarfinu er lögð áhersla á að fjölga kaupendum og alþjóðlegum fjölmiðlum á Vestnorden ferðakaupstefnunni sem löndin skiptast á að halda.
Tveir Íslendingar sitja í stjórn ferðamálasamstarfs Íslands, Grænlands og Færeyja auk tveggja fulltrúa frá hvoru hinna landanna. Fulltrúar Íslands eru: Áslaug Alfreðsdóttir og Ólöf Ýrr Atladóttir.
Styrkir - janúar/febrúar 2012
Umsóknir vegna næstu úthlutunar er til 13. febrúar 2012. Nánar um styrki NATA 2012








.gif)
.gif)
.gif)