Um Ferðamálastofu
Ferðamálastofa
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
29. desember 2008
Helena Þ. Karlsdóttir nýr lögfræðingur Ferðamálastofu
Helena Þ. Kalsdóttir, lögfræðingur, tók til starfa hjá Ferðamálastofu þann 2. desember síðastliðinn. Hún tók við af Auðbjörgu L. Gústafsdóttur, lögfræðingi.
Starfssvið Helenu eru lögfræðileg viðfangsefni Ferðamálastofu og stjórnvaldsákvarðanir samkvæmt lögum um skipan ferðamála nr.
Lesa frétt
23. desember 2008
Vefur Vatnajökulsþjóðgarðs í loftið
Opnuð hefur verið heimasíða fyrir Vatanjökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn var sem kunnugt er formlega stofnaður um mitt þetta ár og er einstakur á heimsvísu.
Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir um 12.000 ferkílómetra svæði eða um 12 prósent af flatarmáli landsins og er þar með stærsti þjóðgarður Evrópu.
Lesa frétt
22. desember 2008
Vefur Breiðafjarðarfléttunar opnaður
Breiðafjarðarfléttan er samstarfsverkefni ferðaþjónustuaðila á Snæfellsnesi, í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum, með öðrum orðum við Breiðafjörð. Félagsskapurinn hefur þann tilgang að auka og styrkja samstarf á milli aðila, efla gæði þjónustunnar, auka nýsköpun í ferðaþjónustu og vinna sameiginlega að markaðssetningu á svæðinu.
Lesa frétt
19. desember 2008
Gefum íslenska gjöf, gefum Íslandi gjöf!
Ýmis ferðaþjónustufyrirtæki eru meðal fyrirtækja um land allt sem taka þátt í átaki um kynningu og sölu gjafavöru og góðrar þjónustu. Önnur fyrirtæki eru meðal annars að bjóða matvæli, hlýjan fatnað, vandaða muni, bað- og heilsumeðferðir, svo fátt eitt sé nefnt.
Lesa frétt
18. desember 2008
Jól og áramót í Reykjavík 2008-2009
Höfuðborgarstofa hefur eins og fyrri ár tekið saman ítarlegan lista um þá þjónustu og afþreyingu sem í boði er yfir jól og áramót. Ferðaþjónustuaðilum er bennt á að það er allra hagur að koma þessum upplýsingum sem best og víðast á framfæri við gesti.
Lesa frétt
17. desember 2008
Tilurð og mótun ferðaþjónustu á Íslandi
Ferðaþjónusta á jaðrinum: Tilurð og mótun ferðaþjónustu á Íslandi er titill þriggja ára rannsóknarverkefnis sem dr. Gunnar Þór Jóhannesson, nýdoktor (post doc) við Mannfræðistofnun Háskóla Íslands, vinnur nú að.
Lesa frétt
15. desember 2008
Verkefni um sjávartengda ferðaþjónustu
Verkefnið "Marine-Based Employment Opportunities (MBEO)", sem aðilar frá Íslandi, Írlandi og Noregi eiga aðild að, fékk nýlega forverkefnisstyrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPP). Frá þessu er greint á vef Byggðastofnunar.
Lesa frétt
11. desember 2008
Styrkir til úrbóta í umhverfismálum 2009
Ferðamálastofa hefur auglýst eftir styrkjum til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2009. Styrkir skiptast sem fyrr í þrjá meginflokka og sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að bættu aðgengi að áningastöðum.
Lesa frétt
10. desember 2008
Krásir - þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð
Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu Krásir sem er fræðslu og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð. Í verkefnin verður boðið upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla.
Lesa frétt
9. desember 2008
Hinn upplýsandi ferðalangur
Rannsóknamiðstöð ferðamála, ásamt kennaradeild háskólans í Jyväskylä, hefur gefið út bókina The Illuminating Traveler - Expressions of the Ineffability of the Sublime. Í henni eru 15 greinar um ferðamál og fyrirbærafræði en titill bókarinnar gæti útlagst: „Hinn upplýsandi ferðalangur - birting tjáningar þess sem ekki verður tjáð“.
Lesa frétt








.gif)
.gif)
.gif)