Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

31. desember 2007
Magnús Oddsson lætur af embætti ferðamálastjóra
Í dag er síðasti vinnudagur Magnúsar Oddssonar sem ferðamálastjóra. Magnús var fyrst skipaður ferðamálastjóri 1. janúar 1994, en hafði áður verið settur í embættið í 15 mánuði. Hann hefur því gegnt störfum ferðamálastjóra í 15 ár og 3 mánuði.
Lesa frétt
28. desember 2007
Country Hótel Anna hlaut umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2007
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent í dag í 13. sinn. Að þessu sinni var verðlaunahafi Country Hótel Anna á Moldnúpi undir Eyjafjöllum. Magnús Oddsson ferðamálastjóri afhenti verðlaunin á skrifstofu Ferðamálastofu.
Lesa frétt
27. desember 2007
Farþegar um áætlunarflugvelli yfir hálfa milljón
Í dag fór fjöldi farþega um íslenska áætlunarflugvelli, að Keflavíkurflugvelli frátöldum,  í fyrsta skipti yfir 500 þúsund á ársgrundvelli. Þetta er um 17% aukning á milli ára en á árinu 2006 fóru 426.
Lesa frétt
21. desember 2007
Mæling á framkomu gagnvart viðskiptavinum
Samtökin International Mystery Shopping Alliance, sem eru alþjóðasamtök fyrirtækja á sviði ”Mystery Shopping” (eða hulduheimsókna), hafa nú gefið út skýrslu um framkomu fyrirtækja gagnvart viðskiptavinum.
Lesa frétt
19. desember 2007
Fleiri stefna á Green Globe vottun
Í haust var sett af stað verkefni innan Ferðaþjónustu bænda sem miðaði að því að auðvelda ferðaþjónustubændum að öðlast hina alþjóðlega umhverfisvottun Green Globe. Verkefnið var unnið í samstarfi Ferðaþjónustu bænda, Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og umhverfisráðgjafarfyrirtækisins UMÍS ehf.
Lesa frétt
17. desember 2007
Jarðskjálftasetur undirbúið á Kópaskeri
Skjálftafélagið, félag áhugafólks um jarðskjálftasetur á Kópaskeri, var stofnað nýverið. Hugmyndin setrið byggir á því að skapa aðdráttarafl fyrir ferðafólk með því að nýta sér jarðfræðilegar aðstæður og merka sögu svæðisins í tengslum við jarðskjálfta.
Lesa frétt
13. desember 2007
Dateline Iceland til 200 þúsund áskrifenda
Desemberútgáfa af Dateline Iceland, mánaðarlegu veffréttabréfi Ferðamálastofu í Bandaríkjunum, er nú komin út og hefur verið send í tölvupósti til rúmlega 200 þúsund áskrifenda. Eins og við er að búast er fréttabréfið í jólabúningi og það prýðir meðal annars mynd af vígalegum jólasveini á kajak.
Lesa frétt
12. desember 2007
Áning 2008 komin út
Gistibæklingurinn Áning er nú kominn út fjórtánda árið í röð.  Í bæklingnum er að finna upplýsingar um næstum því þrjú hundruð gististaði, tæplega 100 tjaldsvæði og um 75 sundlaugar um land allt, segir í frétt frá útgefenda.
Lesa frétt
10. desember 2007
Tekjuaukning hjá hótelum í október
Í nýjasta fréttabréfi Samtaka ferðaþjónustunnar er meðal annars greint frá niðurstöðum tekjukönnunar SAF og  Hotelbenchmark.com fyrir októbermánuð. Fram kemur að í samanburði Norðurlandanna er niðurstaðan fyrir Ísland nokkuð góð.
Lesa frétt
6. desember 2007
Fimmtíu sækja um embætti ferðamálastjóra
Fimmtíu umsóknir bárust um embætti ferðamálastjóra en umsóknarfrestur rann út í byrjun vikunnar. Í gær var listi yfir umsækjendur birtur á vef samgönguráðuneytisins. Þar kemur fram að farið verður yfir umsóknir næstu daga og vikur.
Lesa frétt