Leyfisskyld starfsemi innan ferðaþjónustunnar

Það skal skýrt tekið fram að eftirfarandi umfjöllun er ekki tæmandi. Hér verður fjallað um helstu  afþreyingarþætti í ferðaþjónustu  og skoðað hvaða leyfi skylt er að hafa fyrir viðkomandi starfsemi. Tilgangurinn er að hjálpa fólki fyrstu skrefin í lagaumhverfinu og auðvelda því að leita sér upplýsinga. Þar sem leyfismálin geta verið margþætt verður að skoða hvert tilfelli fyrir sig. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðamálastofu og /eða viðkomandi stofnunum. Hér er fjallað um eftirtalda starfsemi:

Veitinga- og gististaðir

Til að rekstraraðila sé heimilað að starfrækja starfsemi sína þarf viðkomandi að hafa þar til gert starfsleyfi að því tilskyldu að hann uppfylli viðeigandi ákvæði laga og reglugerða.
Umsóknareyðublöð varðandi starfsleyfi er hægt að nálgast hjá sýslumannsembættum eða lögregluembættum um allt land. Á eyðublaðinu kemur skýrt fram hvaða vottorð og fylgiskjöl þurfa að berast með formlegri umsókn. Þegar formleg umsókn hefur borist sýslumanni leitar hann eftir vottorði eða umsögn frá vinnueftirliti, heilbrigðiseftirliti, eldvarnareftirliti og sveitastjórn á viðkomandi svæði. Leyfi er veitt til fjögurra ára í senn og skal þá endurnýjað.

ATH. Taki nýr aðili við rekstrinum skal sótt um nýtt leyfi. Meðan umsókn er til afgreiðslu gildir fyrra leyfi.

Sjá nánar:


Önnur leyfi
Áfengisveitingaleyfi
- Sækja skal um leyfi til áfengisveitinga á veitingastað til sveitarstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi.
Tóbakssöluleyfi
- Öll fyrirtæki sem hyggjast selja tóbak verða að hafa til þess tóbakssöluleyfi frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga.

Þess ber ennfremur að geta að þeir sem hyggjast byggja nýtt húsnæði fyrir starfsemina þurfa að fá til þess leyfi hjá skipulags- og byggingaryfirvöldum viðkomandi sveitarfélags.

Bílaleigur

Þann 3. apríl 2006 samþykkti Alþingi breytingar á lögum um bílaleigur, nr. 64/2000. Meðal breytinga má nefna að umsjón með bílaleigum er færð til Vegagerðarinnar, en málaflokkurinn heyrði áður undir Samgönguráðuneytið.

Sækja skal um starfsleyfi til reksturs bílaleigu að jafnaði amk. 1-2 mánuðum áður en fyrirhuguð starfsemi á að hefjast.  Vegagerðin aflar umsagnar lögreglustjóra í því umdæmi sem bílaleiga mun hafa fasta starfsstöð.

Sá einn getur fengið starfsleyfi Vegagerðarinnar til reksturs bílaleigu sem uppfyllir skilyrði 4. gr. laga um bílaleigur nr. 64/2000 með síðari breytingum. Starfsleyfi er veitt til fimm ára í senn og skal greiða gjald fyrir útgáfu þess kr. 25.000.

Sjá nánar

Hestaferðir

Þeir aðilar sem bjóða upp á hestaferðir skulu hafa til þess þar til gert starfsleyfi. Um er að ræða skriflegt leyfi frá heilbrigðisnefnd þar sem tilteknum rekstraraðila er heimilað að starfrækja tilgreinda starfsemi að því tilskildu að hann uppfylli viðeigandi ákvæði laga, reglugerða og starfsleyfis.” (Reglugerð um hollustuhætti 941/2002.) Sækja skal um leyfið til viðkomandi heilbrigðiseftirlits á þar til gerðum eyðublöðum sem þar fást.

Ef boðið er upp á dagsferðir (ferðir allt að 24 klst. án gistingar) þarf viðkomandi aðili einnig að hafa ferðaskipuleggjendaleyfi gefið út hjá Ferðamálastofu. Ef gisting bætist við þarf ferðaskrifstofuleyfi. Sama er ef hestaferðirnar eru lengri en 24 klst. en þá er gert ráð fyrir að gisting sé innifalin í ferðinni. Ferðaskrifstofuleyfi er innig gefið út hjá Ferðamálastofu.

Sjá nánar

Hvalaskoðun og aðrar bátaferðir, s.s. sjóstangaveiði

Samkvæmt lögum um skipan ferðamála  merkir Ferðaskipuleggjandi aðili, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili sem, að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, setur saman, býður fram og selur í atvinnuskyni ferðatengda þjónustu fyrir almenning. Sá aðili er býður upp á hvalaskoðun eða aðrar bátaferðir sem ná yfir einn dag fellur þar með undir þessa skilgreiningu og þarf að hafa þar til gert ferðaskipuleggjendaleyfi svo og leyfi Siglingastofnunnar Íslands varðandi farþegaskip og rekstur þeirra. Ef hinsvegar ferðirnar ná yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) þá er viðkomandi að bjóða fram alferð og  þarf þar af leiðandi  að sækja um ferðaskrifstofuleyfi sem gefið er út af Ferðamálastofu. Leyfishafi skal hafa leyfið sýnilegt á starfsstöð sinni.

Sjá nánar

Flúðasiglingar - Kajakferðir

Þeir sem stunda flúðasiglingar og kajakferðir í atvinnuskyni þurfa að hafa ferðaskipuleggjendaleyfi frá Ferðamálastofu ef umræddar ferðir ná einungis yfir einn dag svo og leyfi frá Siglingastofnun er gildir fyrir smærri báta sem notaðir eru á sjó, ám eða vötnum. Ef hinsvegar ferðirnar ná yfir lengri tíma en daglengd (24 klst) þá er viðkomandi að bjóða upp á  alferð og  þarf þar af leiðandi  að sækja um ferðaskrifstofuleyfi sem gefið er út af Ferðamálastofu. Leyfishafi skal hafa leyfið sýnilegt á starfsstöð sinni.

Sjá nánar

Skoðunar- og ævintýraferðir með ýmsum ökutækjum

Skoðunarferðir með rútu
Þeir sem bjóða upp á skoðunarferðir með rútu þurfa að hafa til þess tilskilin leyfi. Ferðaskipuleggjendaleyfi sem Ferðamálastofa gefur út og almennt rekstrarleyfi til fólksflutninga gefið út af Vegagerðinni. Athugið að rekstrarleyfisumsókninni þarf að fylgja rekstraráætlun.

Jeppa- og jöklaferðir
Þeir aðilar sem bjóða upp á jeppa – og jöklaferðir í formi dagsferða skulu hafa ferðaskipuleggjendaleyfi gefið út hjá Ferðamálastofu. Ef hinsvegar ferðirnar ná yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) flokkast ferðin sem alferð og ber þá viðkomandi aðila að sækja um leyfi til reksturs ferðaskrifstofu sem einnig er gefið út af Ferðamálastofu. Einnig ber viðkomandi aðilum að hafa jeppaleyfi til aksturs sérútbúinna bifreiða sem gefið er út af Vegagerðinni.

Akstur sérútbúinna bifreiða.
Vegagerðin skal veita leyfi til notkunar sérútbúinna bifreiða, t.d. til fjallaferða, enda þótt slíkar bifreiðar rúmi færri farþega en níu. Skilyrði slíks leyfis er að það sé eingöngu notað í tengslum við þjónustu við ferðamenn og að umsækjandi hafi leyfi skv. lögum nr. 73/2001. Leyfi samkvæmt þessari grein er ekki veitt á hverja einstaka bifreið heldur einungis á rekstraraðila. Hann skal þó merkja þær bifreiðar sem hann notar til akstursins. Leyfi þetta skal í fyrsta sinn gilda í eitt ár en síðan í fimm ár í senn og vera óframseljanlegt. ( Reglugerð um fólksflutninga á landi 20. gr. 528/2002)

Sjá nánar

Þess ber að geta að þeir aðilar sem bjóða upp á ferðir með vélknúnum farartækjum þurfa að vera með tækin skráð samkvæmt lögum og tryggð ökumannstryggingu og ábyrgðartryggingu.

Vélsleða – og fjórhjólaferðir
Þeir aðilar sem bjóða upp á dagsferðir á vélsleða eða á fjórhjóli skulu hafa ferðaskipuleggjendaleyfi gefið út hjá Ferðamálastofu. Ef hinsvegar ferðirnar ná yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) flokkast ferðin sem alferð og ber þá viðkomandi aðila að sækja um leyfi til reksturs ferðaskrifstofu sem einnig er gefið út af Ferðamálastofu.

Sjá nánar

Gönguferðir – Hjólreiðaferðir – Hundasleðaferðir

Þeir aðilar sem bjóða upp á dagsferðir í formi gönguferða, hjólreiðaferða eða hundasleðaferða skulu hafa ferðaskipuleggjendaleyfi gefið út hjá Ferðamálastofu. Ef hinsvegar ferðirnar ná yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) flokkast ferðin sem alferð og ber þá viðkomandi aðila að sækja um leyfi til reksturs ferðaskrifstofu sem einnig er gefið út af Ferðamálastofu.

Sjá nánar

Veiði villtra dýra, s.s. hreindýra og fugla
Allir sem stunda veiðar á villtum dýrum, öðrum en rottum og músum, sbr. lög nr. 64/1994, skulu afla sér veiðikorts hjá veiðstjórnunarsviði Umhverfisstofnunnar.Veiðikort veitir handhafa þess rétt til að stunda veiðar á villtum dýrum á Íslandi og í íslenskri efnahagslögsögu. Skotvopna- og veiðinámskeið eru haldin á vegum Umhverfisstofnunnar.

Sjá nánar

Ef hinsvegar aðilar eru að bjóða upp á pakkaferðir með eða án gistingar þar sem veiði er innifalin þá eru þeir leyfisskildir. Ef ferðin nær yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) þá ber viðkomandi skipuleggjanda að hafa ferðaskrifstofuleyfi útgefið hjá Ferðamálastofu. Ef hinsvegar ferðin er bara daglengd þá ber þeim aðila sem skipuleggur ferðina að hafa ferðaskipuleggjendaleyfi sem einnig er gefið út hjá Ferðamálastofu.

Veiði í ám og vötnum, dorgveiði
Ef verið er að bjóða ferð með gistingu og þá þarf viðkomandi aðili er skipuleggur slíka ferð að hafa  ferðaskrifstofuleyfi útgefið hjá Ferðamálastofu. Ef hinsvegar er verið að bjóða pakka er nær einungis yfir einn dag (24 klst.) með áðurnefndri afþreyingu inni í þeim pakka þarf viðkomandi að hafa ferðaskipuleggjendaleyfi sem einnig er útgefið hjá Ferðamálastofu. Hvað varðar þessa tegund afþreyingar er best að skoða hvert tilfelli fyrir sig með tilliti til hvað hver aðili er að bjóða upp á. 

Sjá nánar