Leyfismál
Ferðamálastofa
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
Árleg skil bóhaldsgagna:
Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. laga um skipan ferðamála þurfa ferðaskrifstofur fyrir 1. október ár hvert að senda Ferðamálastofu gögn sem áskilin eru samkvæmt reglum nr. 1100/2005 um bókhald og reikningsskil ferðaskrifstofa.
Þessi gögn eru:
- a) Áritaður ársreikningur síðasta rekstrarárs.
- b) Yfirlit yfir mánaðarlega veltu síðasta rekstrarárs þar sem áætluð velta vegna sölu alferða er sérgreind. Útreikningur á frádrætti vegna áætlunarflugs skal sýndur sérstaklega og heildarveltan afstemmd við ársreikning. Yfirlitið skal staðfest af löggiltum endurskoðanda leyfishafa.
- c) Yfirlit yfir áætlaðar mánaðarlegar rekstrartekjur yfirstandandi árs þar sem áætluð velta vegna sölu alferða er sérgreind.
- d) Staðfesting endurskoðanda leyfishafa um að bókhaldskerfi sé í samræmi við ákvæði þessara reglna.
Meðfylgjandi Excel-skjal skal nota til að standa skil á gögnum sem áskilin eru í liðum b, c og d hér að ofan. Athugið að vista skjalið á eigin tölvu áður en byrjað er að vinna með það.








.gif)
.gif)
.gif)