Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

28. desember 2006
Norrænn ferðarisi í eigu Íslendinga
Norrænn ferðarisi í íslenskri eigu varð til í gær með stofnun Northern Travel Holding. Félagið er í eigu Fons, FL Group og Sunds. Hið nýja félag hefur keypt Sterling flugfélagið, allt hlutafé Iceland Express, yfir helmings hlut í flugfélaginu Astraeus, stóran hlut í sænsku ferðaskirfstofunni Ticket og alla hluti í dönsku ferðaskrifstofunni Hekla Travel.
Lesa frétt
27. desember 2006
Sérstakur jólapakki - Reiði guðanna?
Á Þorláksmessu barst Ferðamálastofu lítill pakki frá konu í Kanada. Þegar pakkinn var opnaður komu í ljós tveir litlir hraunmolar og bréf þar sem sagði meðal annars eitthvað á þessa leið: “Á ævintýralegri ferð minni um Ísland í sumar valdi ég mér hraunmola og tók með mér heim.
Lesa frétt
27. desember 2006
Notkun markaðsfjármuna fyrir árið 2007
Samgönguráðherra hefur að fenginni tillögu Ferðamálastofu, og að fenginni umsögn Ferðamálaráðs um tillöguna, falið Ferðamálastofu að vinna að markaðsaðgerðum á komandi ári í anda hennar. Meiri opinberir fjármunir verða nú til notkunar á erlendu markaðssvæðunum en á yfirstandandi ári.
Lesa frétt
22. desember 2006
Hagvöxtur á heimaslóð 2007
Í nýju fréttabréfi SAF er meðal annars sagt frá því að ferðaþjónustufyrirtæki á Suðurlandi og Suðausturlandi munu hefja þátttöku í verkefni Útflutningsráðs, "Hagvöxtur á heimaslóð" í janúar 2007. Um 20 fyrirtæki á Suðurlandi eru skráð til þátttöku og um 10 fyrirtæki á Suðausturlandi.
Lesa frétt
19. desember 2006
150. skírteinið afhent
Við gildistöku nýrra laga um skipan ferðamála um síðustu áramót tók Ferðamálastofa við útgáfu leyfa til ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda og eftirliti með starfsemi þeirra. Þá var í lögunum tekin upp skráningarskylda upplýsinga- og bókunarmiðstöðva.
Lesa frétt
18. desember 2006
Kynning á markaðsrannsóknum í Kína
Á dögunum boðaði Ferðamálastofa til kynningarfundar um niðurstöður markaðsrannsókna í Kína. Nú er aðgengileg hér á vefnum kynning Ársæls Harðasrsonar, forstöðumanns markaðssviðs Ferðamálastofu, á niðurstöðunum.
Lesa frétt
15. desember 2006
Hvalir efstir í huga og Mývatn eftirminnilegast
Á liðnu sumri var gerð könnun meðal erlendra ferðamanna á ímynd Norðurlands og Eyjafjarðar. Helstu niðurstöður hafa nú verið birtar í skýrslu og eru áhugaverðar að ýmsu leyti. Meðal annars kom fram að hvalaskoðun var það sem fólki var efst í huga varðandi landshlutann og Mývatn var eftirminnilegast.
Lesa frétt
14. desember 2006
Styrkir til úrbóta í umhverfismálum
Ferðamálastofa hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2007. Úthlutað verður um 45 milljónum króna og skiptist upphæðin í þrjá meginflokka. Eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna, innlendra sem erlendra, er íslensk náttúra.
Lesa frétt
14. desember 2006
Ferðamálaráðstefnan 2007 haldin 15. nóvember
Dagsetning er nú komin á hina árlegu ferðamálaráðstefnu Ferðamálastofu á næsta ári. Ákveðið hefur verið að Ferðamálaráðstefnan 2007 verður haldin 15. nóvember. Staðsetning og dagskrá ráðstefnunnar mun verða auglýst síðar.
Lesa frétt
14. desember 2006
Icelandair skráð í Kauphöll Íslands
Stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, Icelandair, var í morgun skráð í Kauphöll Íslands. Jón Karl Ólafsson, forstjóri fyrirtækisins, segir skráninguna auka sveigjanleika fyrirtækisins og reiknar með að virði þess muni vaxa á næstu tólf mánuðum.
Lesa frétt