Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
Samkvæmt lögum um skipan ferðamála merkir Ferðaskrifstofa aðili, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili, sem setur saman, býður fram og selur alferðir í atvinnuskyni, hvort sem er að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, innan lands eða erlendis. Ferðaskrifstofa getur jafnframt haft með höndum og veitt alla þá ferðatengdu þjónustu sem ferðaskipuleggjandi gerir, hvort sem hún er veitt í formi alferða eða ekki. Hugtakið ferðaskrifstofa nær bæði til ferðaheildsala og ferðasmásala samkvæmt lögum nr. 80/1994, um alferðir.
Hver sá sem hyggst starfa sem ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa skal hafa til þess leyfi Ferðamálastofu. Leyfisbréf skal gefið út af Ferðamálastofu og skal leyfishafi hafa það sýnilegt fyrir viðskiptavini á starfsstöð sinni. Ferðamálastofa skal eiga myndrænt auðkenni sem leyfishafi skal nota í hvers kyns auglýsingum um starfsemi sína og á heimasíðu sinni. Í sérstökum tilvikum er Ferðamálastofu heimilt að veita undanþágu frá ákvæði þessu og skal leyfishafi sækja um slíka undanþágu til Ferðamálastofu. Leyfi til reksturs ferðaskipuleggjanda og ferðaskrifstofu er ótímabundið. Þeim einum er heimilt að hafa orðið ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa í nafni starfsemi sinnar sem hlotið hefur leyfi Ferðamálastofu.
Starfsemi ferðaskipuleggjanda og ferðaskrifstofu skal rekin á fastri starfsstöð sem opin skal almenningi á tilgreindum tíma. Heimilt er þó að víkja frá þessu skilyrði ef þjónusta er einungis rekin á rafrænan hátt og skal leyfishafi uppfylla skilyrði 6. gr. laga nr. 30/2002, um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, um það sem koma skal fram á heimasíðu.
Trygging
Ferðaskrifstofa skal hafa tryggingu fyrir endurgreiðslu fjár sem viðskiptavinur hefur greitt vegna alferðar komi til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar ferðaskrifstofu. Trygging skal einnig ná til þess að gera viðskiptavini kleift að ljúka alferð í samræmi við upphaflega áætlun hennar.
Endurgreiðslan nær til:
- Ferðar sem enn er ófarin, þ.e. þegar ferð hefur verið greidd að hluta eða öllu leyti.
- Til heimflutnings viðskiptavinar úr alferð, hvort sem hann er innan lands eða erlendis,.
Aðeins er greitt beint fjárhagslegt tjón af alferð er greitt af tryggingarfé ferðaskrifstofu en ekki tjón sem rekja má til hugsanlegra óþæginda eða miska.
Fjárhæð trygginga er ákvörðuð með eftirfarandi hætti:
a. 60% af veltu tveggja söluhæstu mánaðanna í röð eða
b. 35% af veltu fjögurra söluhæstu mánaðanna í röð eða
c. 15% af heildarveltu á ári
Sú niðurstaða gildir sem gefur hæstu tryggingafjárhæðina. Trygging er aldrei lægri en 1 milljón.
Til að öðlast leyfi
Til að öðlast leyfi þarf umsækjandi eða forsvarsmaður umsækjanda, ef hann er lögaðili, að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a. hafa búsetu á Íslandi
b. hafa náð 20 ára aldri
c. vera lögráða og hafa ekki á síðustu fjórum árum í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld né lögum um skipan ferðamála
d. hafa forræði á búi sínu
e. hafa ekki verið sviptur ferðaskipuleggjanda- eða ferðaskrifstofuleyfi á síðustu þremur árum frá umsókn.
f. leggja fram staðfestingu um ábyrgðartryggingu frá vátryggingafélagi.
Sjá nánar lög um skipan ferðamála
Umsóknareyðublað
Hér að neðan á nálgast umsóknareyðublað fyrir ferðaskrifstofuleyfi. Umsóknina þarf að prenta út eftir að hún hefur verið útfyllt, undirrita hana og senda til Ferðamálastofu ásamt viðeigandi gögnum sem talin er upp á eyðublaðinu.
Umsóknareyðublaðið er Word-skjal. Best er að hægrismella á tengilinn hér fyrir neðan og velja skipunina “Save Target As” til að vista umsóknareyðublaðið á eigin tölvu áður en það er fyllt út. Nánari leiðbeiningar um útfyllingu eru á eyðublaðinu.
- Umsókn um rekstur ferðaskrifstofu (Word-skjal)
Fylgigögn með umsókn um ferðaskrifstofuleyfi
- Skráningarvottorð úr fyrirtækjaskrá (hf. og efh.) eða firmaskrá (sameignarfélag, samlagsfélag eða einkafirma).
a. Ef umsækjandi er einstaklingur og heiti ferðakrifstofu er annað en nafn hans þá þarf að skrá heitið í
firmaskrá í því umdæmi sem atvinnustarfsemin fer fram.
b. Ef umsækjandi er hlutafélag/einkahlutafélag og heiti er annað en nafn fyrirtækis þá þarf að skrá
heitið í fyrirtækjaskrá - Vottorð um skráningu hjáheitis í fyrirtækja- eða firmaskrá (ef við á).
- Búsetuvottorð vegna forsvarsmanns, sbr. a-lið 2. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála.
Vottorðið má fá hjá Þjóðskrá eða íbúaskrá sveitarfélags lögheimilis forsvarsmanns. - Staðfesting á búsforrði forvarsmanns, sbr. d-lið 2. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála.
Vottorðið fæst hjá héraðsdómi í umdæmi lögheimilis forsvarsmanns. - Sakavottorð fyrir forsvarsmann, sbr. c-lið 2. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála.
Vottorðið fæst hjá lögreglustjóra í umdæmi lögheimilis forsvarsmanns. - Staðfesting um ábyrgðartryggingu frá vátryggingarfélagi. Ábyrgðartryggingunni er ætlað að tryggja viðskiptavini leyfishafa á meðan á ferð stendur verði þeir fyrir líkamstjóni eða tjón verði á munum í eigu viðskiptavina. Ath. trygging þarf að vera í gildi á gildistíma leyfisins.
- Rekstraráætlun fyrir yfirstandandi og næsta ár, skipt niður á mánuði og skal áætluð tryggingarskyld velta sérgreind. Sjá sýnishorn bókhaldsgagna sem þurfa að fylgja með umsókn um ferðaskrifstofuleyfi (Excel skjal).
- Greiðsluáætlun fyrir yfirstandandi og næsta ár, skipt niður á mánuði. Sjá sýnishorn bókhaldsgagna sem þurfa að fylgja með umsókn um ferðaskrifstofuleyfi (Excel skjal).
- Áætlun um efnahag fyrir yfirstandandi og næsta ár. Sjá sýnishorn bókhaldsgagna sem þurfa að fylgja með umsókn um ferðaskrifstofuleyfi (Excel skjal).
Kynnið ykkur einnig:
- Reglur um bókhald og reikningsskil ferðaskrifstofa (PDF-skjal)
- Sýnishorn bókhaldsgagna sem þurfa að fylgja með umsókn um ferðaskrifstofuleyfi(Excel skjal)
- rekstrar-, greiðslu- og efnahagsáætlun








.gif)
.gif)
.gif)