Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
Um Ferðamálaráð
Ferðamálaráð var sett á laggirnar með lögum árið 1964. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn 7. júlí það ár.
Árið 1976 samþykkti Alþingi ný lög um ferðamál. Með þeim var Ferðamálaráði falið að vinna að ákveðnum verkefnum og í reynd umsjón með ferðaþjónustu á Íslandi undir yfirstjórn samgönguráðuneytis.
Lögum um ferðamál var síðan breytt árin 1985, 1994, 1999 og loks 2005 er núvernadi lög voru sett en þau tóku gildi í ársbyrjun 2006.
Nýtt ferðamálaráð 2006
Verulegar breytingar urðu á starfsemi ferðamálaráðs með nýjum lögum í ársbyrjun 2006. Fram að því var skipað ferðamálaráð jafnframt stjórn stofnunarinnar en með nýjum lögum var skilið þar á milli. Nafni stofnunarinnar var breytt í Ferðamálastofa, hún færð beint undir samgönguráðherra og henni fengin aukin stjórnsýsluleg verkefni. Um áramót 2007-2008 færðist Ferðamálastofa til iðnaðarráðuneytis.
Með nýjum lögum voru ferðamálaráði einnig fengin ný verkefni. Samkvæmt lögum skipar iðnaðarráðherra ferðamálaráð og í því skulu eiga sæti tíu fulltrúar. Skulu formaður og varaformaður skipaðir af ráðherra án tilnefningar en aðra fulltrúa skipar ráðherra eftir tilnefningu eftirtalinna: Samtaka ferðaþjónustunnar sem tilnefna þrjá fulltrúa, Sambands íslenskra sveitarfélaga sem tilnefnir tvo fulltrúa, Ferðamálasamtaka Íslands sem tilnefna tvo fulltrúa og Útflutningsráðs Íslands sem tilnefnir einn. Skipunartími ferðamálaráðs skal vera fjögur ár en skipunartími formanns og varaformanns skal þó takmarkaður við embættistíma ráðherra. Ferðamálastjóri og fulltrúi ráðuneytisins sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt.
Hlutverk ferðamálaráðs
Ferðamálaráð gerir, árlega eða oftar, tillögu til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar. Jafnframt skal ferðamálaráð vera ráðherra til ráðgjafar um áætlanir í ferðamálum. Ferðamálaráð skal veita umsagnir um breytingar á lögum og reglum er varða ferðamál og annað sem ráðherra felur því eða ráðið telur ástæðu til að taka upp í þágu ferðaþjónustunnar.
Mynd: Frá ferðamálaráðstefnu á Akureyri árið 1966.








.gif)
.gif)
.gif)