Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
Samkvæmt lögum um skipan ferðamála fer Ferðamálastofa með framkvæmd ferðamála. Yfirstjórn málaflokksins er í höndum iðnaðarráðherra sem skipar ferðamálastjóra til fimm ára í senn. Ferðamálastjóri veitir Ferðamálastofu forstöðu og ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.
Verkefni Ferðamálastofu eru einkum:
- Útgáfa leyfa, skráning á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt
- Þróunar-, gæða- og skipulagsmál ferðaþjónustu, þ.e. framkvæmd markaðrar ferðamálastefnu, samræming umhverfis- og fræðslumála, miðlun upplýsinga, svæðisbundin þróun og alþjóðlegt samstarf
- Markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustu, í samræmi við ákvörðun ráðherra hverju sinni
Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um hlutverk og starfshætti Ferðamálastofu og einstök verkefni hennar.
Ferðamálastofu er heimilt með samþykki ráðherra að fela öðrum að annast ákveðin verkefni og vera aðili að samstarfsverkefnum, þar á meðal eiga eignarhluta í fyrirtækjum sem starfa á ákveðnum sviðum.








.gif)
.gif)
.gif)
