Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

Fjármögnun atvinnusköpunar og ýmsir sjóðir

Ferðamálastofa
Ferðamálastofa veitir árlega styrki til verkefna sem tengjast umhverfismálum á ferðamannastöðum. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisfulltrúi, Sími: 464-9990. Sá einnig undir liðnum Umhverfismál / Styrkir hér á vefnum.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er vistaður hjá Ferðamálastofu. Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði. Nánar um framkvæmdasjóð Ferðamannastaða

North Atlantic Tourist Association - NATA
Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. Nánar

Styrkveitingar Iðnaðarráðuneytis undir merkjum Átaks til atvinnusköpunar
Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nánari upplýsingar tinna@nmi.is og á vef Nýsköpunarmiðstöðvar

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra er annað kjarnasviða Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands með skrifstofur í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði, Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum.

Impra veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama í hvaða atvinnugrein þau starfa, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs. Nánar á vef Impru.

Atvinnuþróunarfélög / atvinnuþróunarsjóðir
Atvinnuþróunarfélögum er ætlað að stuðla að nýsköpun og atvinnusköpun, einkum í dreifbýli.

Atvinnuþróunarfélögin og atvinnuþróunarsjóðir í sumum landshlutum veita m.a. ráðgjöf við stofnun og rekstur fyrirtækja á starfssvæðinu, svo sem markaðssókn, vöruþróun, fjármögnun, kynningu, endurskipulagningu, erlend samskipti o.fl. Áhersla skal að jafnaði lögð á nýstofnuð fyrirtæki, fyrirtæki í nýjum atvinnugreinum og fyrirtæki sem hafa afgerandi áhrif á atvinnulíf lítilla byggðarlaga. Félögin veita upplýsingar um mögulega fyrirgreiðslu og aðstoð annarra aðila og leita samstarfs við stofnanir í stoðkerfi atvinnulífs, fyrirtæki og aðra aðila sem vinna ráðgjafar- og leiðbeiningarstarf í atvinnumálum. Atvinnuþróunarfélögin vinna í samstarfi við sveitarfélög, opinbera aðila og félagasamtök að þessum sem og öðrum málum.

Iðnráðgjafar og atvinnumálafulltrúar veita upplýsingar og úrlausnir á sínum stöðum.

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða   (www.atvest.is)
Norðurlands vestra - SSNV-Atvinnuþróun  (www.ssnv.is)
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar   (www.afe.is)
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga   (www.atthing.is)
Þróunarstofa Austurlands    (www.austur.is)
Atvinnuþróunarsjóður Austurlands   (www.austur.is)
Framtakssjóður Austurlands    (www.austur.is)
Atvinnuþróunarsjóð Suðurlands   (www.sudur.is)
Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja
Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum   (www.sss.is)
Atvinnuráðgjöf Vesturlands    (www.ssv.is)

Sum sveitarfélög veita einnig lán og styrki gegnum atvinnumála- og héraðsnefndir.

Búnaðarmálageirinn
Framleiðnisjóður á samkvæmt lögum að verja fé í formi lána og styrkja til eflingar nýrra búgreina, markaðsöflunar og til fjárhagslegrar endurskipulagningar búreksturs á lögbýlum. Í seinni tíð hefur stuðningur sjóðsins í vaxandi mæli beinst að þróunar- og rannsóknarverkefnum og stærri verkefnum á sviði atvinnuuppbyggingar í dreifbýli. www.fl.is

Smáverkefnasjóði var komið á fót til að létta af aðalsjóðnum og er ætlað líkt og atvinnuþróunarsjóðunum að stuðla að fjölbreytni í atvinnuháttum og sinna verkefnum, sem stuðlað geta að atvinnusköpun og atvinnuþróun í dreifbýli. Hámarksstyrkur er kr. 500.000.-
- Árni Jósteinsson, atvinnuráðgjafi sími 563-0300.

Nokkrir aðrir sjóðir eru innan búnaðarmálageirans og má þar helst nefna Stofnlánadeild landbúnaðarins, sem sinnir hefðbundnum verkefnum vegna jarðakaupa, vélakaupa og byggingarframkvæmda. Deildin veitir lán til þeirra sem greiða búnaðarmálasjóðsgjald.

Byggðastofnun
Samkvæmt lögum er Byggðastofnun ætlað að efla atvinnulíf landsbyggðarinnar.
Stofnunin starfar bæði sjálfstætt og með atvinnuþróunarfélögum landshlutanna og er staðsett á Sauðárkróki.

Byggðastofnun veitir fjárfestingalán til ýmiss konar starfsemi en mest til sjávarútvegs, iðnaðar og ferðaþjónustu. Lán eru veitt í IKR, USD eða Evru og getur lántakandi valið um gjaldmiðil. Lán til nýframkvæmda eru yfirleitt til 15 ára en vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar til 6 ára.
www.byggdastofnun.is

Rannís - Rannsóknamiðstöð Íslands
Rannsóknamiðstöð Íslands er ríkisstofnun sem heyrir undir menntamálaráðherra.

  • Rannís veitir íslensku vísinda- og tæknisamfélagi aðstoð til framþróunar á innlendum og erlendum vettvangi
  • Rannís er samstarfsvettvangur til undirbúnings og framkvæmdar opinberrar vísinda- og tæknistefnu
  • Rannís gerir áhrif rannsókna á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan

Stofnunin annast umsýslu Rannsóknasjóðs, Tækjasjóðs, Rannsóknarnámssjóðs, Tækniþróunarsjóðs, Launasjóðs fræðiritahöfunda og markáætlana.

  • Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi.
  • Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi.
  • Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna.
  • Hlutverk Rannsóknarnámssjóðs er að veita styrki til rannsóknatengds framhaldsnáms.
    Almennir styrkir: Styrkir til meistara- eða doktorsnáms á öllum fagsviðum.
    Fyrirtækja- og stofnanastyrkir (FS-styrkir): Styrkir til meistara- eða doktorsnáms sérstaklega ætlaðir til að efla samvinnu milli stofnana, fyrirtækja og háskóla.
  • Meginhlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka,  og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu.

Rannís vinnur að gagnasöfnun og miðlun upplýsinga fyrir Vísinda- og tækniráð og nefndir þess um vísindarannsóknir, tækniþróun og nýsköpun í landinu; aflar upplýsinga og gagna um þróun vísinda og tækni á alþjóðavettvangi.

Reglulega gengst stofnunin fyrir mati á árangri rannsókna, þróunar og nýsköpunar í landinu og tekur þátt í fjölþjóðlegum samanburðarathugunum fyrir hönd Íslands.

Kynning á rannsóknastarfsemi í landinu fyrir almenning er á hendi Rannís sem og að annast kynningu og ráðgjöf fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki um möguleika á styrkjum og stuðla að samvinnu um rannsóknarverkefni innan lands og utan.

Rannís er í samstarfi við hliðstæðar erlendar stofnanir og fylgist með þátttöku Íslands í fjölþjóðlegu vísindastarfi.

www.rannis.is

Bankar og fjármálafyrirtæki
Lánastofnanir, bankar og sparisjóðir veita lán á verðtryggðum eða óverðtryggðum kjörum, allt eftir lengd lánstíma.

Fjármagnsleigufyrirtæki eru fyrirtæki í eigu banka og lánastofnana og bjóða allt að 100% fjármögnun með eignarhaldsákvæðum. Lánskjör eru gjarnan háð mati á stöðu lánþega.

Ýmsir sjóðir

Styrkjum til atvinnumála kvenna er úthlutað einu sinni á ári en um er að ræða styrki frá Velferðarráðuneytinu.  Umsýsla styrkjanna er í höndum Vinnumálastofnunar og er starfsmaður verkefnisins, Ásdís Guðmundsdóttir, staðsett á Sauðárkróki en þjónustar allt landið.  Sími ráðgjafa er  582-4914 og netfang asdis.gudmundsdottir@vmst.is  www.atvinnumalkvenna.is

Lánatryggingarsjóður kvenna styður konur til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að helming lána sem þær taka hjá Landsbanka Íslands til að fjármagna tiltekið verkefni.  Ábyrgðin er veitt á grundvelli mats á arðsemi viðskiptahugmyndarinnar.
www.vinnumálastofnun.is, sími 515-4800

Starfsmenntunarsjóðir veita fé til sjálfsnáms og endurmenntunar um atvinnumál og tækifærasköpun Margrét Gunnarsdóttir, Vinnumálastofnun sími 515-4800.

Húsafriðunarsjóður veitir styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra sem að dómi húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær. Sjóðurinn getur m.a. nýst þeim sem ætla að gera upp gömul hús t.d. vegna veitingareksturs. Ströng skilyrði gilda.
www.hfrn.is - Húsafriðunarnefnd ríkisins – husafridun@husafridun.is - sími 570-1300

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins veitir styrki til ýmissa nýsköpunar- og vöruþróunarverkefna.
www.nsa.is – sími 510-1800

Pokasjóður verslunarinnar veitir styrki til samtaka, félaga og einstaklinga til verkefna sem tengjast umhverfismálum, svo sem landvernd, landgræðslu og skógrækt svo og til menningar-og  listamála.
Skilyrði er að verkefni séu í þágu almennings.
Sími: 553-8000,  pokasjodur@pokasjodur.is

Evrópusambandið veitir styrki til evrópskra samvinnuverkefna í ferðamálum í tengslum við framkvæmdaáætlun Evrópusambandsins á sviði ferðaþjónustu. Samkvæmt skilmálum þurfa Íslendingar að sækja um styrk ásamt a.m.k einum aðila frá ríki innan Evrópusambandsins. Sambandið auglýsir eftir styrkumsóknum fyrir eitt ár í senn og er sérstaklega vakin athygli á því með auglýsingum. Samgönguráðuneytið ítrekar með auglýsingum í fjölmiðlum og veitir nánari upplýsingar um möguleika til styrkveitinga. Umsóknir um styrki eru flóknar og háðar ströngum skilyrðum.

NORA Norræna Atlantsnefndin starfar á vegum Norðurlandaráðs og veitir styrki til samstarfsverkefna fyrirtækja, stofnana og félaga á Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og norður og vestur Noregi.
Styrkir eru veittir á verkefnagrundvelli og skilyrði að það feli í sér samstarf aðila frá a.m.k. tveimur hinna vestlægu Norðurlanda og að það geti á annan hátt stuðlað að framþróun og auknu samstarfi innan svæðisins.
Þórarinn Sólmundarson hjá þróunarsviði Byggðastofnunar á Sauðárkróki, sími 455-5400

Lánasjóður Vestur-Norðurlanda er ætlað að efla fjölbreytt og samkeppnisfært atvinnulíf á Vestur- Norðurlöndum og veitir lán í tengslum við framfaraverkefni lítilla og meðalstórra fyrirtækja og veitir lán á almennum bankakjörum.
Sími: 530-2100, sverri@vestnorden.is

Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordisk InnovationsCenter) á að vinna að því að Norðurlönd verði virkur innri markaður án landamæra þar sem ekkert kemur í veg fyrir frjálsan flutning hæfni, hugmynda, fjármagns, fólks eða afurða. Stofnunin á að stuðla að aukinni samhæfingu nýsköpunarkerfa ríkjanna þannig að fyrirtæki í einu ríkjanna geti sótt um aðstoð frá nýsköpunarkerfi í öðru þeirra. Hún á þannig að stuðla að sameiginlegum þekkingarmarkaði á Norðurlöndum.
www.nordicinnovation.net

Aðrir norrænir sjóðir sem starfræktir eru með aðild Íslendinga og bjóða íslenskum fyrirtækjum ýmsa fyrirgreiðslu með ýmsum skilyrðum eru:

  • Norræni Fjárfestingabankinn í Helsinki
  • Norræni Iðnaðarsjóðurinn í Oslo, Norræni
  • Þróunarsjóðurinn í Helsinki
  • Norræni Verkefnaútflutningssjóðurinn í Helsinki.

Lán eingöngu veitt til stærri verkefna og fyrirtækja.

Upplýsingar um styrki á grundvelli samstarfs Noðurlandanna má finna á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrofstofunnar

Að lokum

Nokkra sjóði má nefna til viðbótar án þess að gera þeim sérstök skil;

Lífeyrissjóðir landsins.

Dæmi eru um bæjarsjóði sem veita "Fegrunarlán" til umhverfisátaks.

Bæjarfélög og stærstu fyrirtæki landsins og hin ýmsu ráðuneyti, kunna að veita styrki til ákveðinna verkefna úr sérstökum sjóðum.

Vinsamlegast athugið að ekki er um tæmandi lista að ræða.