Um Ferðamálastofu
Ferðamálastofa
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
6. desember 2001
Hvatningarverðlaun Ferðamálaráðs Íslands 2001
Á ráðstefnu um heilsutengda ferðaþjónustu sem haldin var í Eldborg við Bláa lónið 6. des. s.l voru hvatningarverðlaun Ferðamálaráðs afhent í fyrsta sinn. Þau komu í hlut Bláa lónsins. Það var Sturla Böðvarsson sem afhenti verðlaunin og í máli hans kom fram að eins og ávallt þegar verðlaun eru veitt eru margir kallaðir en fáir útvaldir en sagði jafnframt að það hefði verið samdóma álit allra í Ferðamálaráði að Bláa lónið stæði upp úr þegar kæmi að veitingu þessara verðlauna.
Lesa frétt
19. október 2001
Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2001
Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs Íslands voru veitt í sjötta sinn á Ferðamálaráðstefnunni sem haldin var á Hvolsvelli 18. - 19. okt s.l Verðlaunin að þessu sinni hlaut ferðaþjónustufyrirtækið Íshestar og veitti Einar Bollason framkvæmdastjóri fyrirtækisins þeim viðtöku úr hendi Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra.
Lesa frétt
19. október 2001
Ferðamálaráðstefnan 2001 - stutt ágrip.
31. Ferðamálaráðstefnan var haldin á Hvolsvelli 18. og 19. okt s.l og var þetta jafnframt sú fjölmennasta sem haldin hefur verið, en alls sóttu hana rúmlega 200 manns hvaðanæva af landinu.Það var Tómas Ingi Olrich, formaður Ferðamálaráðs, sem setti ráðstefnuna en svo tók sveitarstjórinn á Hvolsvelli við, Ágúst Ingi Ólafsson, og greindi frá uppbyggingu ferðaþjónustu í Rángárþingi.
Lesa frétt
30. september 2001
Handbók Ferðamálaráðs 2002
Ákveðið hefur verið að gefa handbók Ferðamálaráðs út einu sinni á ári í stað tvisvar áður. Nú er í gangi vinnsla á nýjum gagnagrunni varðandi handbókina og gular síður á icetourist.is. Útlit handbókar og uppsetning verður með svipuðu sniði nema að yfirkaflarnir verða nú 5 í stað 10 áður.
Lesa frétt
30. september 2001
Ástand og horfur í ferðaþjónustu á Íslandi í kjölfar atburðanna 11. sept. s.l.
Staða:
Starfsumhverfi í alþjóðlegri ferðaþjónustu hefur breyst mjög til hins verra eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11.september síðastliðinn.Flugfélög og önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu urðu fyrir miklu tekjutapi vegna stöðvunar flugs til Bandaríkjanna í fjóra daga, eftirspurn og bókanir hafa dregist saman eftir atburðina og á það í reynd við ferðalög um allan heim.
Lesa frétt
27. september 2001
Rannsókn á þolmörkum ferðamannastaða á Íslandi.
Ferðamálaráð Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands vinna nú að rannsókn á þolmörkum níu ferðamannastaða á Íslandi.
Þolmörk eru sá fjöldi ferðamanna sem svæði þolir áður en grípa verður til takmarkanna eða aðgerða til að forða hnignun ferðamannastaðar.
Lesa frétt
19. september 2001
Framkvæmdir á fjölsóttum ferðamannastöðum 2001.
Ferðamálaráð Íslands hefur á þessu ári unnið að framkvæmdum víða um land. Stærstu framkvæmdir ársins eru við Gullfoss, Öskju og Hengifoss.
Við Gullfoss er verið að bæta göngustíga á neðra svæðinu auk þess sem bílastæðið verður endurnýjað samhliða endurbyggingu vegarins á milli Gullfoss og Geysis.
Lesa frétt
15. september 2001
Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs
Í júní 1982 varð til sú hugmynd innan Ferðamálaráðs Íslands að veita árlega viðurkenningu fyrir umfjöllun um ferðamál í fjölmiðlum. Að baki hugmyndinni lá einnig sú von að slík viðurkenning hvetti til frekari umfjöllunar.
Lesa frétt
8. september 2001
Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu fyrstu 6 mánuði ársins 2001
Aukning um 3 milljarða fyrri helming ársins.Samkvæmt upplýsingum Seðlabankans um gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu fyrri helming ársins 2001 er aukningin frá árinu 2000 rúmlega 3 milljarðar. Aukning tekna vegna eyðslu í landinu er um 1,8 milljarðar, en í fargjaldatekjum rúmlega 1,2 milljarðar.
Lesa frétt
12. júlí 2001
Nýting hótela minnkar í borginni en eykst úti á landi
Herbergjanýting á hótelum í Reykjavík hefur dregist saman síðan í fyrra meðan verð hefur hækkað andstætt því sem átt hefur sér stað á landsbyggðinni, að því er segir í samantekt Samtaka ferðaþjónustunnar
Í júní sl.
Lesa frétt








.gif)
.gif)
.gif)