Um Ferðamálastofu
Ferðamálastofa
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
23. desember 2002
"Scandinavian Travel Award"
Sem kunnugt er verður hin árlega ferðasýning, INTERNATIONAL TOURISM - BÖRSE (ITB) haldin í Berlín dagana 7.-11. mars nk. Í tengslum við hana mun útgáfufyrirtækið NORDIS Verlag í annað sinn veita svokölluð "Scandinavian Travel Award" verðlaun.
Lesa frétt
19. desember 2002
Ísland virkur aðili í Ferðamálaráði Evrópu
Um 600 manns sóttu árlega ráðstefnu Ferðamálaráða Evrópu, European Travel Commission (ETC), sem haldin var í New York sl. miðvikudag. Ferðamálaráð Íslands hefur í áratugi verið aðili að (ETC) en innan þessara 50 ára gömlu samtaka eru nú 33 ferðamálaráð jafnmargra þjóða.
Lesa frétt
18. desember 2002
Viðburðarríkur dagur í fluginu
Segja má að gærdagurinn hafi verið nokkuð viðburðarríkur hvað varðar tíðindi af flugsamgöngum til og frá landinu. Annars vegar var tilkynnt formlega um stofnun á nýju íslensku lággjaldaflugfélagi, Iceland Express.
Lesa frétt
18. desember 2002
Verkefni í menningarferðaþjónustu fær 50 milljóna króna styrk frá ESB
Evrópuverkefnið "Destination Viking - Sagas & Storytelling" fékk um helgina jákvæða afgreiðslu á umsókn um styrk úr sjóði Northern Periphery áætlunar Evrópusambandsins sem Íslendingar gerðust aðilar að fyrr á þessu ári.
Lesa frétt
18. desember 2002
Tekjukönnun SAF í nóvember 2002
Samtök Ferðaþjónustunnar hafa birt niðurstöður úr tekjukönnun sinni fyrir nóvembermánuð. Hún sýnir m.a betri nýtingu herbergja en á sama tíma í fyrra, bæði í Reykajvík og á landsbyggðinni.
Þorleifur Þór Jónsson, hagfræðingur SAF, segir mjög óeðlilegt ef nýting í Reykjavík hefði ekki batnað frá því í fyrra þar sem yfir 200 herbergi hafa verið tekin úr rekstri á meðan endurbætur standa yfir á Hótel Esju.
Lesa frétt
18. desember 2002
Skipurit Ferðamálaráðs Íslands
Á fundi Ferðamálaráðs fyrr í vikunni voru samþykktar skipulagsbreytingar og skipurit fyrir stofnunina. Starfseminni er formlega skipt upp í þrjú svið og þannig stofnað nýtt svið, markaðssvið. Undir það munu heyra öll markaðsmál, jafnt innlend sem erlend.
Lesa frétt
16. desember 2002
Gistinætur og gestakomur á hótelum í október
Hagstofan hefur nú birt bráðabirgðatölur yfir gistinætur og gestakomur á hótelum í október síðastliðnum. Meðal þess sem fram kemur er að miðað við sama tímabil í fyrra þá fækkar gistinóttum í öllum landshlutum nema Suðurlandi.
Lesa frétt
12. desember 2002
Framkvæmdum við fjölfarna ferðamannastaði miðar vel
Á undanförnum árum hefur Ferðamálaráð sem kunnugt er staðið að úrbótum í umhverfismálum á mörgum fjölsóttum ferðamannastöðum. Í haust hafa staðið yfir framkvæmdir á þremur stöðum, þ.e við Hraunfossa í Borgarfirði, Gullfoss og Skógarfoss, og miðar þeim öllum vel.
Lesa frétt
9. desember 2002
"Vistakstur" tekinn upp á hjá Hópbílum og Hagvögnum
Þau neikvæð áhrif sem notkun bifreiða hefur á umhverfið ættu að vera flestum kunn og ekki er síst mikilvægt að fyrirtæki sem gera út bifreiðar séu meðvituð um þessa staðreynd. Nú hafa Hópbílar og Hagvagnar sett sér umhverfisstefnu sem felur m.
Lesa frétt
6. desember 2002
Íslandsbæklingur Ferðamálaráðs 2003 kominn út
Hinn árlegi Íslandsbæklingur Ferðamálaráðs er mikilvægur liður í markaðssetningu Íslands sem ferðamannalands. Íslandsbæklingurinn fyrir árið 2003 er nú kominn úr prentun og farinn í dreifingu.
Íslandsbæklingurinn er myndskreyttur landkynningarbæklingur og er sem fyrr gefinn út á 10 tungumálum, þ.
Lesa frétt








.gif)
.gif)
.gif)