Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

7. ágúst 2004
Kynnisferðir og Austurleið SBS sameinast
Kynnisferðir hafa keypt bróðurpart hlutafjár í Austurleið SBS. Nafn nýja félagsins verður Kynnisferðir en reknar verða þrjár deildir innan fyrirtækisins: Flugrútan, Austurleið og Reykjavik Excursions. Framkvæmdastjóri félagsins er Stefán Eyjólfsson og staðgengill hans verður Þráinn Vigfússon sem einnig er fjármála og upplýsingastjóri félagsins.
Lesa frétt
4. júlí 2004
Ferðaleikurinn "Á puttanum"
Um helgina hefst ferðaleikur Ferðamálaráðs, Shellstöðvanna og Símans sem kallast "Á puttanum". Leikurinn er liður í kynningarátaki Ferðamálaráðs "Ísland sækjum það heim". Íslendingar hvattir til að heimsækja upplýsingamiðstöðvarnarHugmyndin er að hvetja Íslendinga sem eru á ferðalagi til að heimsækja Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, þjónustumiðstöðvar Símans og Shellstöðvar um land allt og afla sér upplýsinga um landið.
Lesa frétt
30. apríl 2004
Gistiskýrslur 2002 komnar út
Hið árlega rit Hagstofunnar, Gistiskýrslur, er nú komið út en þar eru birtar niðurstöður úr gistináttatalningu Hagstofunnar fyrir árið 2002. Í ritinu eru meðal annars birtar tölur um gestakomur og gistinætur á hótelum, gistiheimilum, tjaldsvæðum, farfuglaheimilum, í skálum, svefnpokagistingu, heimagistingu og í sumarhúsum.
Lesa frétt
10. apríl 2004
Gistináttafjöldi á hótelum í febrúar eykst örlítið milli ára
Gistinætur á hótelum í febrúarmánuði s.l voru 48 þúsund en töldust 47 þúsund árið 2002. Á landsbyggðinni átti sér stað samdráttur í öllum landshlutum nema á Suðurlandi, en þar fjölgaði gistinóttum á hótelum í febrúarmánuði um 22% milli áranna 2002 og 2003.
Lesa frétt
20. janúar 2004
Auglýst eftir umsóknum um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum um allt land
Á undanförnum árum hefur Ferðamálaráð Íslands veitt styrki til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum. Svo verður einnig í ár og hefur nú verið auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2003. Á síðustu árum hafa ákveðnir landshlutar komið til úthlutunar á hverju ári en að þessu sinni er ekki um slíka skiptingu að ræða heldur er hægt að sækja um styrki til úrbóta á ferðamönnastöðum um allt land.
Lesa frétt
20. janúar 2004
Handbók Ferðamálaráðs 2003 komin út
Handbók Ferðamálaráðs Íslands fyrir árið 2003 er komin út. Þetta er viðamikið rit en bókin byggir m.a á gagnagrunni Ferðamálaráðs sem geymir upplýsingar um vel á annað þúsund ferðaþjónustuaðila um allt land.
Lesa frétt
13. janúar 2004
Víðast fækkun gistinátta í nóvember
Hagstofan birti í dag bráðabirgðatölur yfir gistinætur og gestakomur á hótelum í nóvember á síðasta ári. Sé litið til sama mánaðar árið áður er um samdrátt að ræða í flestum landshlutum, minnst þó á Norðurlandi.
Lesa frétt
2. janúar 2004
Ferðamálasjóður lagður niður
Nú um áramótin var Ferðamálasjóður lagður niður í þeirri mynd sem hann hefur starfað og tók ríkissjóður við eignum og skuldum hans. Samgöngu-, iðnaðar- og fjármálaráðuneyti gerðu með sér samkomulag um að stuðningur við verkefni á sviði ferðaþjónustu verði áfram veittur í formi samstarfs Ferðamálaráðs og Byggðastofnunar.
Lesa frétt
30. desember 2003
Samstarfsaðilar og styrkþegar - Kynningarfundir
Ferðamálráð Íslands auglýsti fyrir nokkru síðan eftir samstarfsaðilum að markaðs- og kynningarmálum í ferðaþjónustu og eftir umsóknum um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum. Nú er boðið til kynningarfunda um viðkomandi samstarf og styrki.
Lesa frétt
18. desember 2003
Verkefni um viðburðaskipti styrkt af Norðurslóðaáætluninni
Tvö verkefni með íslenskum þátttakendum fengu brautargengi hjá Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins að þessu sinni og koma vestfirskir aðilar að þeim báðum. Nýtt verkefni um viðburðaskiptiEins greint hefur verið frá tekur Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða þátt í Evrópuverkefni um græna ferðamennsku og síðan eru Ísafjarðarbær og Héraðsnefnd Snæfellinga meðal þátttakenda í nýju verkefni um svokölluð viðburðaskipti sem ber nafnið "Usevenue".
Lesa frétt