Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

23. desember 2004
Fjörugar umræður á aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands
Á dögunum héldu Ferðamálasamtök Íslands aðalfund sinn fyrir árið 2004. Var hann að þessu sinni haldinn á Hótel Stykkishólmi. Fundurinn var vel sóttur og að venju voru ýmis mál til umfjöllunar. Dagskráin hófst með setningu Péturs Rafnssonar, formanns samtakanna.
Lesa frétt
22. desember 2004
Jólakveðja til 170 þúsund aðila
Netið er öflugur miðill til kynningar og í vikunni sendi skrifstofa Ferðamálaráðs í New York rafræna jólakveðju til um 100.000 aðila í ferða- og fjölmiðlaþjónustu í Bandaríkjunum og Kanada. Jafnframt var hún send til 70.
Lesa frétt
15. desember 2004
Sumarkönnun Ferðamálaráðs meðal erlendra gesta - Náttúra Íslands er aðdráttaraflið
"Meginniðurstaða þessarar könnunar og samanburðar við fyrri kannanir er einfaldlega að hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður hefur lítið verið að breytast á þessum átta árum sem liðin eru frá því við hófum þessar kannanir.
Lesa frétt
15. desember 2004
Breytingar um áramót á framkvæmd verktakasamnings
Frá og með áramótum verður sú breyting gerð að framkvæmd samnings Ráðstefnuskrifstofu Íslands (RSÍ) og Ferðamálaráðs verður á markaðssviði Ferðamálaráðs en ekki á stjórnsýslusviði. Aukið færi á að vinna með sérfræðingum Ferðamálaráðs erlendisMeð þeir breytingu sem nú verður gerð gefst aukið færi á að vinna að málefnum RSÍ með sérfræðingum Ferðamálaráðs á skrifstofum ráðsins erlendis.
Lesa frétt
15. desember 2004
Styrkir til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2005
Ferðamálaráð Íslands hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2005. Úthlutað verður um 40 milljónum króna og skiptist upphæðin í þrjá meginflokka. Eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna, innlendra sem erlendra, er íslensk náttúra.
Lesa frétt
13. desember 2004
Þrír stórir bandarískir fjölmiðlar beina kastljósinu að Íslandi
Ísland hefur sannarlega verið áberandi í bandarískum fjölmiðlum upp á síðkastið og er skemmst að minnast "The Amazing Race" þáttaraðarinnar. Mörg fleiri dæmi mætti nefna og á næstu dögum munu þrír af stóru bandarísku fjölmiðlunum beina kastljósinu að Íslandi í þáttum og greinum.
Lesa frétt
13. desember 2004
Ekki auglýst eftir samstarfsaðilum vegna kynningar erlendis 2005
Eins og áður hefur komið fram var við afgreiðslu fjárlaga nú í desember samþykkt 150 milljón króna fjárveiting til markaðsverkefna í ferðaþjónustu. Þetta er 170 milljónum lægra en á yfirstandandi ári. Lækkunin er hliðstæð upphæð og var nýtt til samstarfsverkefna erlendis á þessu ári.
Lesa frétt
10. desember 2004
Iceland Express áformar að fjölga áfangastöðum
Í bígerð er hjá Iceland Express að færa út kvíarnar og fjölga áfangastöðum í Evrópu frá næsta vori. Í frétt í Morgunblaðinu í dag kemur fram að valið standi á milli Hahnflugvallar í Þýskalandi og Lúxemborgar.
Lesa frétt
9. desember 2004
Áhugaverður sérkortadiskur fyrir ferðafólk
Landmælingar Íslands hafa sent frá sér kortadisk sem er einkar áhugaverður fyrir ferðafólk. Á honum eru m.a sérkort af vinsælum ferðamannastöðum, friðlöndum og þjóðgörðum. Þetta er þriðji kortadiskurinn sem Landmælingar gefa út.
Lesa frétt
7. desember 2004
Ný stjórn hjá Félagi ferðamálafulltrúa
Aðalfundur Félags ferðamálafulltrúa á Íslandi (FFÍ) var haldinn í Stykkishólmi á dögunum. Þar var meðal annars farið yfir það sem hæst bar á liðnu starfsári og kosin ný stjórn. Í nýrri stjórn FFÍ sitja sem aðalmenn Haukur Suska Garðarsson, atvinnuráðgjafi í Austur-Húnavatnssýslu; Hrafnhildur Tryggvadóttir, forstöðumaður, Upplýsinga- og kynningamiðstöðvar Vesturlands og Knútur Karlsson, forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Akureyri.
Lesa frétt