Um Ferðamálastofu
Ferðamálastofa
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
30. desember 2005
Ný lög um skipan ferðamála taka gildi
Í maí síðastliðnum voru samþykkt ný lög um skipan ferðamála ( lög 73/2005). Lögin taka gildi nú 1. janúar 2006. Helstu breytingar frá núgildandi lögum hvað varðar starfsemi skrifstofu Ferðamálaráðs eru þessar.
Lesa frétt
23. desember 2005
Samningur um samevrópskt flugsvæði
Af hálfu Íslands var áritaður fyrr í vikunni samningur um sameiginlegt flugsvæði í Evrópu (European Common Aviation Area). Frá þessu er greint á vef Samgönguráðuneytisins.
Ísland er aðili að samningnum auk Evrópusambandsins, Albaníu, Bosníu og Hersegóvínu, Búlgaríu, Króatíu, Makedóníu, Noregs, Serbíu og Svartfjallalands, Rúmeníu og UNMIK í Kosovo.
Lesa frétt
21. desember 2005
Ferðamenn frá áramótum komnir yfir 340 þúsund
Samkvæmt talningum Ferðamálaráðs í Leifsstöð voru erlendir ferðamanna í nóvember síðastliðnum 15.500 talsins. Þar með eru erlendir ferðamenn frá áramótum orðnir tæplega 341 þúsund, um 4 þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra og nemur aukningin 1,2% miðið við fyrstu 11 mánuði ársins.
Lesa frétt
20. desember 2005
Ákveðið að tilnefna Surtsey á heimsminjaskrá UNESCO
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að tilnefna Surtsey á heimsminjaskrá UNESCO í febrúar á næsta ári. Þingvellir eru nú eini íslenski staðurinn á þessum lista.
Fyrir fjórum árum samþykkti ríkisstjórnin tillögu menntamálaráðherra og umhverfisráðherra um að tilnefna Þingvelli og Skaftafell á heimsminjaskrá UNESCO.
Lesa frétt
19. desember 2005
Flokkunarviðmið gististaða breiðist út
Flokkunarviðmið gististaða, það sem notaða er hér á landi og kemur frá frændum okkar Dönum, er í stöðugri þróun og útbreiðslu og nú nýlega hafa eystarsalts ríkin bæst í hópinn. Er þá óhikað hægt að tala um flokkunarkerfi sem alþjóðlegt, sem er vel.
Lesa frétt
16. desember 2005
Könnun um aukna og betri umhverfisfræðslu til ferðafólks
Með styrk frá umhverfis- og samgönguráðuneyti hefur Landvernd fengið það hlutverk að leiða samstarf hagsmunaaðila um hvernig megi auka og bæta fræðslu til ferðamanna um umhverfismál. Verkefnið hefur fengið vinnuheitið ÍslandsGátt.
Lesa frétt
16. desember 2005
Síðasti fundur núverandi Ferðamálaráðs Íslands
- 669 fundir á 41 ári.
Í gær var haldinn síðasti fundur núverandi Ferðamálaráðs, þar sem ný lög um skipan ferðamála taka gildi 1. janúar næstkomandi.
Með nýjum lögum fær það Ferðamálaráð sem skipað verður samkvæmt þeim nýtt hlutverk.
Lesa frétt
14. desember 2005
Miðja landsins fundin
Landmælingar Íslands hafa nú reiknað út og staðsett miðju landsins. Þetta er spurning sem margir hafa velt fyrir sér í gegnum árin og aldirnar en nýjasta tækni hefur gert mögulegt að reikna þetta út með öruggum hætti.
Lesa frétt
13. desember 2005
Vefur Ferðamálaráðs kemur vel út
Í gær var kynnt úttekt sem gerð var á vefjum ríkis og sveitarfélaga. Alls voru 246 vefir skoðaðir og metnir og kemur vefur Ferðamálaraðs, ferdamalarad.is, vel út í samanburði við aðra opinbera vefi.
Þetta er í fyrsta skipti sem úttekt af þessari stærðargráðu er gerð á Íslandi.
Lesa frétt
9. desember 2005
FL Travel selur Íslandsferðir í Skandinavíu
FL Travel Group, sem er hluti af samstæðu FL Group, hefur tekið ákvörðun um að selja allar erlendar ferðaskrifstofur sem hafa verið partur af Íslandsferðum, dótturfélagi FL Travel Group. Í dag var tilkynnt um sölu á Íslandsferðum í Noregi og Svíþjóð; Islandia Travel AS og Islandsresor AB.
Lesa frétt








.gif)
.gif)
.gif)