Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

Smærri styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum 2012

Ferðamálastofa auglýsir eftir umsóknum um styrki til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum. Áhersla er á verkefni er tengjast uppbyggingu og vöruþróun göngu- og hjólaleiða, bættu aðgengi og öryggi ferðamanna og söguferðamennsku.

Hámarksupphæð hvers styrks verður 800 þúsund krónur og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði og/eða hönnun. Ekki er veittur styrkur fyrir eldsneyti, fæðiskostnaði eða vinnuframlagi við framkvæmdir. Til ráðstöfunar eru 8 milljónir króna.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2012. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.

Hvar ber að sækja um:
Umsóknar fara í gegnum rafrænt umsóknakerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Þar eru skrá umsækjendur sig inn, fá notendanafn og lykilorð  og veitir skráningin umsækjanda gagnvirkan aðgang að umsóknareyðublöðum. Kerfið er að fullu rafrænt og hægt er að vista umsóknir og halda áfram síðar.

Nýsköpunarmiðstöð lógó   Opna umsóknasíðu á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands 

 


Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna
Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna er nauðsynlegt að kynna sér neðangreint efni:

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri
Netfang: sveinn@ferdamalastofa.is - Sími: 535-5500