Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
Gagnagrunnur Ferðamálastofu og Handbókin Ísland
Á undanförnum árum hefur á vegum stofnunarinnar verið byggður upp viðamikill gagnagrunnur. Í honum eru nú upplýsingar um vel á annað þúsund ferðaþjónustuaðila um allt land, ásamt ýmsum hagnýtum upplýsingum fyrir ferðafólk, bæði á ensku og íslensku. Má fullyrða að um er að ræða heildstæðasta gagnagrunninn um íslenska ferðaþjónustu sem til er í dag og er hann alltaf að stækka. Í grunninum er m.a. að finna ítarlegar upplýsingar um gistingu, þ.e. hótel, gistiheimili, bændagistingu, farfuglaheimili, sumarhús, skála og tjaldsvæði. Einnig skipulagðar ferðir af öllu tagi og samgöngur, s.s. rútur, báta, flug, bílaleigur, strætisvagna og leigubíla. Þá er þar að finna upplýsingar um opnunartíma safna um allt land, lista yfir það sem er á döfinni, golfvelli, veiði, sundlaugar, reiðhjólaleigur og hestaleigur. Loks má nefna ýmsar fleiri hagnýtar upplýsingar, svo sem um upplýsingamiðstöðvar, ferðaskrifstofur, sendiráð erlendra ríkja og ræðismenn, vegalengdir á milli staða og ýmislegt fleira. Skráning í grunninn er ferðaþjónustuaðilum að kostnaðarlausu og hann er öllum aðgengilegur á landkynningarvefnum, www.visiticeland.com og ferðavefnum www.ferdalag.is. Jafnframt birtast upplýsingar á öllum landshlutavefjum markasstofanna á landsbyggðinni.
Handbókin Ísland
Gagnagrunnurinn er einnig gefinn út sem handbókarformi. Um er að ræða geilsadisk með PDF-skjölum sem hver og einn getur síðan prentað út að vild.
Á disknum eru tvær aðal möppur, íslenska og enska. Í hverri möppu eru síðan tvær undirmöppur; „Landshlutar“ og „Bókin í heild“. Í möppunni „Landshlutar“ eru pdf-skrár með hverjum landshluta fyrir sig þar sem öllum köflum handbókarinnar er steypt í eina skrá og því hægt að prenta hvern landshluta í heild sinni sem eitt skjal.
Í möppunni „Bókin í heild“ er bókinni skipt upp í möppur eftir aðal kaflaheitum bókarinnar;
Almennar upplýsingar
Samgöngur
Gisting
Afþreying
Menning & Listir
Veitingastaðir
Þar undir er hverjum flokki áfram skipt niður eftir landshlutum en hver hluti er í sér pdf-skjali þannig að hægt er að prenta út hvern kafla fyrir sig.
Diskurinn er til sölu hjá Ferðamálastofu og kostar 7.500.- krónur.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri, sími 464-9990 eða upplysingar@ferdamalastofa.is. Þangað er ferðaþjónustuaðilum einnig bent á að snúa sér til að fá skráningu í gagnagrunninn.








.gif)
.gif)
.gif)