Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is
Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]
ferdalag.is - Fyrir Íslendinga á ferð um eigið land
Ferðamálastofa heldur úti vefsíðunni www.ferdalag.is Við hönnun og smíði vefsins var haft að markmiði að safna saman á einn stað sem mestu af þeim upplýsingum sem nýst gætu Íslendingum við skipulagningu ferðalaga um eigið land. Hér á vefnum er að finna ýmsar upplýsingar um staðhætti og náttúrufar, skipt eftir landssvæðum og þar er komið inn á marga af áhugaverðustu staði landsins. Einnig er fjallað um akstur og umferð, útivist, göngugerðir, náttúruverndarsvæði o.fl.
Upplýsingabrunnur um ferðalög
Stærsti hluti vefsins er síðan viðamikill gagnagrunnur sem byggður hefur verið upp á undanförnum árum. Í honum eru nú upplýsingar um vel á annað þúsund ferðaþjónustuaðila um allt land, ásamt ýmsum hagnýtum upplýsingum fyrir ferðafólk, bæði á ensku og íslensku. Má fullyrða að um er að ræða stærsta gagnagrunninn um íslenska ferðaþjónustu sem til er í dag og er hann alltaf að stækka. Í grunninum er m.a. að finna ítarlegar upplýsingar um gistingu, þ.e. hótel, gistiheimili, bændagistingu, farfuglaheimili, sumarhús, skála og tjaldsvæði. Einnig skipulagðar ferðir af öllu tagi og samgöngur, s.s. rútur, báta, flug, bílaleigur, strætisvagna og leigubíla. Þá er þar að finna upplýsingar um opnunartíma safna um allt land, lista yfir það sem er á döfinni, golfvelli, veiði, sundlaugar, reiðhjólaleigur og hestaleigur, svo nokkuð sé nefnt. Loks má nefna ýmsar fleiri hagnýtar upplýsingar, svo sem um upplýsingamiðstöðvar, ferðaskrifstofur, vegalengdir á milli staða og ýmislegt fleira.

Síðast uppfært: Nóvember 2011








.gif)
.gif)
.gif)